Austfjarðagöng

Viðhorfskönnun 

Næstu jarðgöng á Miðausturlandi?

Sú könnun sem hér er sett fram er unnin af fyrirtækinu Envalys fyrir Samgöngufélagið sumarið 2024.

Tilgangur könnunarinnar er:

  • Að setja fram og kynna á sem einfaldastan hátt þá jarðgangakosti á Miðausturlandi sem helst hafa verið ræddir.
  • Fá fram afstöðu þátttakenda til þess hvaða göng gera eigi næst til að þjóna sem best bæði Seyðisfirði og heildarhagsmunum íbúa og vegfarenda á Miðausturlandi auk fleiri atriða.
Allir 16 ára og eldri sem skráðir eru í þjóðskrá geta tekið þátt í könnuninni en skrá þarf sig í gegn um island.is á svæði hennar til að tryggja að hver og einn geti tekið þátt aðeins einu sinni. Þátttaka getur verið hvort heldur sem er undir nafni eða nafnlaust.
Miðað er við að fyrstu niðurstöður verði birtar að liðnum tveimur vikum frá upphafi könnunarinnar en hún verði höfð opin í allt að sex mánuði og jafnvel lengur ef henta þykir og staðan birt af og til.
Á svæði könnunarinnar og hér að neðan má sjá þrjú tölvugerð myndbönd sem sýna þá vegi sem um ræðir í raunumhverfi.
Á svæði könnunarinnar má sjá þrjú tölvugerð myndbönd sem sýna þau göng og vegi að þeim og frá sem um ræðir.

Austfjarðagöng

Seyðisfjarðargöng

Mjóafjarðargöng

Helstu upplýsingar, gögn og forsendur, kosti og galla, við þá kosti sem um ræðir má nálgast með því að smella á borðann hér að neðan:

Þátttaka í könnuninni getur tekið um 4 til 5 mínútur.

Gangi þér vel.

Gerast félagi

Skráðu þig í samgöngufélagið

11 + 10 =