Fundarboð
Á að heimila gjaldtöku af nagladekkjum á höfuðborgarsvæðinu?
Til lokameðferðar á Alþingi er frumvarp til nýrra umferðarlaga (sjá hér).
Þar var í fyrstu drögum gert ráð fyrir heimild til handa sveitarfélögum að leggja á sérstakt gjald fyrir notkun nagladekkja, en í frumvarpinu sem var lagt fyrir Alþingis í haust var ákvæði um þetta ekki lengur inn.
Því boðar Samgöngufélagið til fundar þar sem farið verður yfir ýmsar hliðar þessa álitaefnis og sérstaklega horft til höfuðborgarsvæðisins í því sambandi.
Fundurinn verður í Setri á Grand hótel við Sigtún í Reykjavík miðvikudaginn 3. apríl og hefst kl. 13:00 stundvíslega.
Fundarstjóri verður Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi forseti Alþings.
Dagskrá:
Kl. 13:00 Fundarsetning, Jónas Guðmundsson, formaður Samgöngufélagsins.
Kl. 13:10 Reynsla Norðmanna af gjaldtöku (The Norwegian studded tyre fee scheme) – Pål Rosland hjá Norsku Vegagerðinnni segir frá reynslu af gjaldtöku í Noregi (á ensku) – fyrirspurnir.
Kl. 13:40 Vegagerðin – “Hjólför í íslensku malbiki – nagladekkjaslit og deigar formbreytingar” Birkir Hrafn Jóakimsson, byggingarverkfræðingur
Kl. 13:55 Kaffihlé.
Kl. 14:05 Umhverfisstofnun – “Svifryk frá vegyfirborði og heilsufarsáhrif svifryks” Þorsteinn Jóhannsson, umhverfisfræðingur.
Kl. 14:20 Félag ísl. bifreiðaeigenda, “Gegn lagasetningu á umferðaröryggi” Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri.
Kl. 14:35 Reykjavíkurborg, Þorsteinn Rúnar Hermannsson, samgöngustjóri.
Kl. 14:45 Fyrirspurnir og umræður.
Kl. 15:00 Fundarslit.
Dagskráin getur breyst án fyrirvara.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Vel væri þegið ef þátttaka yrði tilkynnt á netfang Samgöngufélagsins samgongur@samgongur.is
Frekari upplýsingar veitir Jónas Guðmundsson í s. 898 6794