Næstu jarðgöng á Mið-Austurlandi?

Viðhorfskönnun

Þeirri könnun sem hér er kynnt er ætlað að:

  • Kynna með myndrænum hætti þau mögulegu jarðgöng sem helst teljast geta haft jákvæð samfélagsleg áhrif fyrir Mið-Austurland, ekki síst Seyðisfjörð.
  • Fá fram afstöðu þátttakenda til þess í hvaða röð þeir teljja rétt að gera þau göng sem um ræðir auk fleiri atriða tengd gerð þeirra.

Um könnunina

Könnunin sem hófst 28. febrúar sl. hefur verið framlengd og er stefnt að henni ljúki laugardaginn 30. mars nk.

Öllum sem hafa aðgang að rafrænum skilríkjum er heimil þátttaka án tillits til aldurs eða búsetu.

Könnun þessi er á vegum Samgöngufélagsins en fyrirtækið Envalys sér um framkvæmd hennar og úrvinnslu gagna. 

Að könnun lokinni verður unnin samantekt úr þeim niðurstöðum sem fást og hún kynnt opinberlega þannig að mögulega megi taka tillit til hennar við gerð samgönguáætlunar 2026-2040. 

Segja má að um þrjá raunhæfa kosti sé að ræða varðandi gerð næstu jarðganga á Mið-Austurlandi. Eru þeir sem hér segir (sjá einnig kort):

  1. Fjarðarheiðargöng undir Fjarðarheiði milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða/Héraðs.
  2. Tvenn göng milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar um Mjóafjörð (Seyðisfjarðargöng og Mjóafjarðargöng) hér eftir nefnd Fjarðagöng.
  3. Seyðisfjarðargöng milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða/Héraðs um Mjóafjörð og Slenjudalsgöng milli Mjóafjarðar og Héraðs.

Fjarðarheiðargöng

Seyðisfjarðargöng og Slenjudalsgöng

Seyðisfjarðargöng og Mjóafjarðargöng

Vegalengdir milli staða um möguleg göng (kort úr skýrslunni Seyðisfjarðargöng frá árinu 2019)

Lengd og lega þeirra ganga sem hér eru rædd

Í öllum tilfellum þyrfti síðan að huga að áframhaldandi gerð ganga síðar meir til að tryggja sem greiðasta láglendisleið milli allra þéttbýlisstaða á Mið-Austurlandi.

Við kost 1 væri það Fjarðagöng,
Við kost 2 annað hvort Fjarðarheiðargöng eða Slenjudalsgöng.
Við kost 3 Mjóafjarðargöng, þ.e. göng milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar.

Þetta er ein þeirra spurninga sem óskað er svara við í þessari könnun. Sjá spurningar sem óskað er svara við hér

Hér er vísað á efni sem tengist mögulegri gerð jarðganga á Mið-Austurlandi:

Velkomið er að senda ábendingar um hlekki á fleiri síður sem nýst geta hér á netfangið samgongur@samgongur.is.

Þessi síða var siðast uppfærð: 15.03.2026