Húnavallaleið – Vindheimaleið?

Viðhorfskönnun

Í þessari könnun er kallað eftir viðhorfum til gerðar nýrra vega svonefnda Húnavallaleið í Húnabyggð í Austur-Húnavatnssýslu og Vindheimaleið í Skagafirði.

Á Þessu korti sýna bláu línurnar legu þeirra mögulegu nýju vega sem ræðir.
Húnavallaleið til vinstri yrði um 17 km og stytti Hringveginn um allt 14 km
Vindheimaleið til hægri yrði um 14 km og stytti Hringveginn um allt að 6 km
Miðað er við að gerð veganna yrði að mestu fjármögnuð með veggjöldum.

Könnunin sem hófst 28. febrúar sl. hefur verið framlengd og er stefnt að henni ljúki sunnudaginn 10. maí með möguleika á framlengingu.

Öllum sem hafa aðgang að rafrænum skilríkjum er heimil þátttaka án tillits til aldurs eða búsetu.

Könnun þessi er á vegum Samgöngufélagsins en fyrirtækið Envalys sér um framkvæmd hennar og úrvinnslu gagna.

Að könnun lokinni verður unnin samantekt úr þeim niðurstöðum sem fást og hún kynnt opinberlega þannig að mögulega megi taka tillit til hennar við gerð samgönguáætlunar 2026-2040.

Hér að neðan má sjá myndbönd þar sem líkt er eftir ferð umrædda vegi.

Húnavallaleið

Vindheimaleið

Myndband þetta sýnir akstur í gegn um þéttbýlið á Blönduósi – milli 90 km hraðamarka (2024)

Myndband þetta sýnir akstur í gegn um þéttbýlið í Varmahlíð í Skagafirði – milli 90 km hraðamarka (2024)

Athugið að skrá þarf sig inn á könnunina með rafrænum skilríkjum og að lokinni þátttöku í henni er ekki unnt að skrá sig þar inn á ný. Því er rétt að kynna sér vel þær spurningar sem bornar eru upp áður en þátttaka í könnuninni er virkjuð. Sjá spurningar sem óskað er svara við hér

Hér er vísað á efni sem tengist mögulegri gerð vega um Húnavallaleið og Vindheimaleið:

Velkomið er að senda ábendingar um hlekki á fleiri síður sem nýst geta hér á netfangið samgongur@samgongur.is

Þessi síða var siðast uppfærð: 28.04.2026